Sleppa og fara á aðalsíðu

Bakheilsa

Við eigum allt sem til þarf

Þú getur náð stjórn á bakverkjunum. Veldu rétt rúm til að lina verkina og hversdagurinn breytist til hins betra. DUX veitir þér djúpstæða hvíld án þrýstings sem er góð fyrir hrygginn.

Vertu með bakið beint

Þegar þú sefur á nóttunni fær bakið ekki alltaf hvíldina sem það þarf á að halda. Spenna getur myndast í bakinu ef stuðningurinn er ekki réttur. Þess vegna eru vörur okkar hannaðar í því augnamiði að veita bakinu þínu virkan stuðning. Ímyndaðu þér að sofa í rúmi sem lagar sig eftir líkamslögun þinni og hreyfingum þínum. Hvers konar áhrif hefur þetta á þig? Eðlilegri líkamsstaða, afslappaðri vöðvar, minni verkir, betra blóðflæði og tækifæri til að endurheimta líkamann að fullu yfir nóttina. DUX-rúmið veitir þér þetta allt.

Rétt svefnstaða

Best er að sofa á hliðinni af eftirfarandi ástæðu. Þetta er eina líkamsstaðan sem réttir úr bakinu. Einnig verður mjög lítill þrýstingur á bakið þegar þú liggur á hliðinni. Hægt er að losa um enn meiri þrýsting á mjóbakið ef þú sefur í fósturstellingunni.

Dr Jason Gordon, baksérfræðingur með yfir tveggja áratuga starfsreynslu

Linar bakverk

Sérsniðið að þínum þörfum

Pascal-kerfið með stillanlegum þægindasvæðum

Við vitum að ein stærð passar ekki endilega fyrir alla og því bjóðum við sérsniðnar lausnir til að uppfylla sértækar þarfir þínar. Enginn er eins að lögun, stærð og þyngd og því verður þú og maki þinn að fá rúm sem tekur mið af þörfum hvers og eins.

Pascal-kerfið er með útskiptanlegum gormahylkjum sem gerir þér kleift að sérstilla þína hlið rúmsins til að fá fyrsta flokks stuðning og þægindi. DUX-rúm gera enga málamiðlun hvað þægindi varðar.

Lesa meira

Stuðningur við mjóbak

Hvort sem um langvarandi eða tímabundin veikindi er að ræða, eins og t.d. íþróttameiðsli eða þungun, þurfa flestir á aukastuðningi við mjóbakið að halda. DUX 8008-línan er fullkomin lausn sem uppfyllir allar þarfir þínar og sveif fylgir einnig með.

DUX 8008 með stuðningi við mjóbak

Ólík rúm fyrir ólíkar þarfir

Við bjóðum einstök, samtengd gormakerfi, Pascal-kerfi með stillanlegum þægindasvæðum og stillanlegum mjóbaksstuðningi í öllum gerðum. Við notum eingöngu fyrsta flokks efni sem eru valin m.t.t. mikilla afkasta. Dýnan frá okkur er síðasta lúxusdýnan sem þú þarft að kaupa. Hugsaðu um heilsuna, fáðu þér besta lúxusrúmið sem völ er á og sofðu betur.

Finna þitt rúm

bakheilsa

Goðsögnin um harða rúmið

Í gegnum tíðina hafa dýnur verið framleiddar úr efnum sem þjappast mikið saman og á endanum síga slíkar dýnur niður í miðjunni. Slíkt sig á dýnunni olli því að fólk fékk bakverki og því var hart rúm betri kostur að þeirra áliti.

Vísindin hafa sýnt að rúmið ætti hvorki að vera of hart né of mjúkt. Við mat á réttri dýnu verður að skoða hvernig hún styður við hrygginn. Hryggurinn er í réttri stöðu þegar vöðvarnir slaka alveg á. Rúm sem tryggir rétta stöðu hryggjarins veitir fyrsta flokks þægindi og heilbrigt bak.

Lesa meira

Dýnan skiptir máli

Rúmið þitt getur linað bakverkinn

Læknisfræðilegar rannsóknir hafa leitt í ljós að yfir 80% af öllu fólki fær bakverki einhvern tímann á ævinni. Vöðvarnir venda hrygginn yfir daginn. Þau eiga hvíld skilið yfir nóttina. Bakverkir eru af mismunandi gerðum og sem betur fer eru í boði margvíslegar lausnir við þeim. Hvort sem þú ert með verki í mjóbaki, fyrir miðju baki, efri hluta baksins eða í hálsinum, er koddi, rúm eða dýna í boði til að lina slíka verki.

Allt frá árinu 1926 hafa verkfræðingar okkar rannsakað bakverki og svefnvenjur til að skapa besta umhverfið til að lina háls- og bakverki. Kynntu þér fyrst ólíkar gerðir bakverkja og leitaðu síðan að fullkominni, sérsniðinni lausn frá DUX.