Sleppa og fara á aðalsíðu

Rúm

DUX 303

Nýjasta rúmið okkar er með stillanlegum þægindasvæðum.

DUX 303

DUX 303 er nýjasti rúmbotninn okkar með innbyggðu Pascal-kerfi til að sérstilla hvíldarsvæði. Þetta er fyrsta dýnan okkar án ramma sem er hönnuð til að passa í rúmið þitt. Þessi miklu þægindi skapast með samspili tveggja DUX-uppfinninga – gormakerfis með þúsundum samtengdra gorma annars vegar og einstaka Pascal-kerfisins okkar hins vegar.

  • DUX-gormakerfi
  • Pascal-kerfi
DUX 303
DUX 303
DUX 303
Rúm 303

Eiginleikar

  • Tvöföld gormadýna úr náttúrulegum latex-svampi með tveimur lögum af gormum, 10 cm og 12 cm
  • Pascal-kerfi – auðvelt að breyta stillingum þægindasvæða úr mjúku í mjög stíft
  • Fjöldi gorma í stærðinni 90 x 200 cm er 2004
  • Leðurskreytingar
  • Útskiptanleg yfirdýna úr latexsvampi
  • Hæð dýnu er 34 cm

Sérsniðið rúm

Við viljum að rúmið þitt sé þinn griðastaður. Þess vegna velur þú alla íhluti þess, allt frá dýnu, höfðagafli og yfirdýnu til fótanna. Gerðu DUX persónulegt!

Finna verslun Svona geturðu sérsniðið þitt rúm

Pascal-kerfi með stillanlegum þægindasvæðum

Klæðskerasniðin að þínum þörfum

Pascal-kerfið með stillanlegum þægindasvæðum gerir þér kleift að sérstilla þína hlið rúmsins. Búnaðurinn er með fjórum stillingum (mjúkt, miðlungs, stíft og mjög stíft) og hann má sérstilla á þremur mismunandi svæðum: við herðar, mjaðmir og fótleggi. Allt tryggir þetta hárrétta stöðu hryggsúlunnar og færir þér væran nætursvefn.

Kynntu þér Pascal-kerfið

Óviðjafnanleg þægindi

Leyndarmálið okkar hjá DUX er tækni. Markmið okkar er að tryggja besta hugsanlega svefn, með áherslu á rétta líkamsstöðu og bættan djúpsvefn. Við erum sífellt að þróa gormatæknina okkar og nýtum okkur þaulprófaðar tæknilausnir til að gera DUX-rúmin ótrúlega þægileg.

Nýsköpun DUX

Sjá einnig

Aukahlutir

Veldu rúmfætur, höfðagafl, pífulak og sængurlín. Sérhannaða fylgihlutalínan okkar hentar fullkomlega fyrir DUX-rúmið þitt.

Fylgihlutir fyrir rúm Sængurföt

Hvers vegna DUX?

Fleiri ástæður fyrir DUX